100 ný hjúkrunarrými tilbúin – 3 mánuðum á undan áætlun

Urðarhvarf 16 í Kópavogi

Í dag bætast 100 ný hjúkrunarrými við á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið í Urðarhvarfi 16 var afhent 3 mánuðum á undan áætlun – þegar þörfin er sem mest.

Um er að ræða nýja og glæsilega starfsstöð Heilsuverndar fyrir sólarhringshjúkrun á 8 hæðum auk bílakjallara. Verkkaupi er Súlur Reykjavík ehf., en Heilsuvernd mun annast rekstur. Um er að ræða eitt stærsta verkefni sinnar tegundar á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum árum.

Þörf fyrir hjúkrunarrými hefur verið mikil og ljóst að samfélagið hefur kallað eftir hraðari uppbyggingu. Við hjá GG Verk lögðum því ríka áherslu á að flýta framkvæmdum eins og kostur var – án þess að slaka á kröfum um gæði, öryggi og fagmennsku.

Verkið fól í sér hönnun og framkvæmdir við tæknikerfi og fullan frágang innanhúss fyrir 100 hjúkrunarrými ásamt stoðrýmum. Hönnun hófst í nóvember 2024 og framkvæmdir í mars 2025. Upphafleg verklok voru áætluð í maí 2026 – en með markvissri verkstjórn, öflugu skipulagi og nánu samstarfi allra aðila tókst að afhenda verkefnið nú í febrúar 2026.

GG sá um hönnun og framkvæmd

- 100 hjúkrunarrými

- 8 hæðir + bílakjallari

- Hönnun frá nóvember 2024

- Framkvæmdir frá mars 2025

- Áætluð afhending maí 2026 - afhent febrúar 2026

- Afhent 3 mánuðum fyrr en áætlað

Fólk í fyrsta sæti – í verki

Við viljum þakka sérstaklega verkefna-, staðar-, verk-, gæða- og öryggisstjóra, fjármálasviði, framleiðsluteymi og öllum okkar öflugu undirverktökum sem lögðu sitt af mörkum. Hópurinn hljóp hratt í átt að sameiginlegu markmiði – að skila mikilvægum innviðum fyrir samfélagið sem fyrst.

Það er ábyrgð sem við tökum alvarlega.

Við buðum lykilstjórnendum verkefnisins og mökum þeirra til kvöldverðar að verklokum til að þakka fyrir einstakt framlag. Slíkur árangur gerist ekki af sjálfu sér.

Að afhenda 100 hjúkrunarrými þremur mánuðum á undan áætlun krefst skipulags, aga og trausts. Þetta verkefni sýnir hvað öflugt teymi með skýra sýn og sameiginleg gildi getur áorkað.

Við erum stolt af samstarfinu við Súlur Reykjavík ehf. og Heilsuvernd – og ekki síst stolt af teyminu okkar.

Nú eru 100 ný hjúkrunarrými komin í notkun á höfuðborgarsvæðinu. Þegar þörfin er sem mest.

Verkefnið endurspeglar skýrt gildi okkar – Fólk í fyrsta sæti – og sýnir hverju áreiðanleiki og fyrirhyggja í framkvæmd skila í raun fyrir samfélagið þegar á reynir.