GG Verk stóðst frávikalausa ISO 9001 gæðavottunarúttekt 11. árið í röð!
GG Verk stóðst í dag ytri ISO 9001 gæðavottunarúttekt án frávika. Þetta er 11. árið í röð sem gæðastjórnunarkerfi félagsins hlýtur alþjóðlega vottun.
Leila, gæða- og öryggisstjóri ásamt Rutu verkefnastjóra, Bjarka staðarstjóra ásamt verkstjórunum Ragnari og Sigurjóni.
Vottunin staðfestir að verklag, gæðakerfi og skráning GG Verk standist kröfur ISO 9001 staðalsins. Fyrir okkur er þetta mikilvæg staðfesting á fagmennsku, rekjanleika og stöðugum umbótum í daglegum rekstri.
Árangurinn er fyrst og fremst teymisins. Gæði verða til í skipulagi, ábyrgð og góðum vinnubrögðum, bæði á verkstöðum og skrifstofu.
Til hamingju Team GG!