Mannvirki GG Verk
Stofnað 2006, ISO 9001:2015

Við byggjum
af fyrirhyggju.

GG Verk er 20 ára byggingafyrirtæki sem setur fólk í fyrsta sæti. Fólk, fyrirhyggja, áreiðanleiki og ábyrgð.

01 Um okkur

Tuttugu ár.
Vönduð mannvirki.

GG Verk var stofnað árið 2006 af bræðrunum Gunnari og Helga Gunnarssyni, þriðju kynslóð í fjölskyldu smiða. Afi þeirra og faðir, báðir Gunnar Gunnarssyni, voru smiðir og lögðu grunninn að áratuga reynslu fjölskyldunnar í faginu.

Fyrirtækjamenningin ber þess enn merki að vera byggð á fjölskyldugrunni, þar sem samvinna, þátttaka og teymisvinna gegna veigamiklu hlutverki í öllu sem við gerum.

20
ár í rekstri
1.653
byggðar einingar
317
einingar í byggingu
93%
starfsánægja
02 Fólkið okkar

Fólk í
fyrsta sæti.

Við setjum fólk í fyrsta sæti, ekki síst starfsfólkið okkar. Starfsánægjumælingar sýna ár hvert að okkur líður vel saman í vinnunni. Hjá félaginu starfa um 100 manns.

Kynnstu fólkinu okkar
Teymi GG Verk
05 Eignir

Til sölu.

Nýjar, vandaðar íbúðir í verkefnum okkar sem nú eru til sölu. Smelltu til að skoða nánar.

Vantar þig nánari upplýsingar eða aðra eign? Hafðu samband, við aðstoðum þig.
Hafa samband
07 Aðferð

GG Módelið.

Hlutverk GG Verk er að byggja vönduð mannvirki sem byggð eru innan tilskilins tímaramma, af framúrskarandi fagmennsku og umhyggju fyrir fólki og umhverfi. Til þess vinnum við markvisst eftir stjórnkerfi sem við köllum GG Módelið. Gildin fjögur eru hjartað í því hvernig við gerum hlutina.

Gildin fjögur
01

Fólk í fyrsta sæti

Mannvirki eru fyrir fólk og byggð af fólki. Þess vegna setjum við fólk (viðskiptavini, starfsfólk og samstarfsaðila) alltaf í fyrsta sæti, og tryggjum ávallt öryggi þeirra.

02

Fyrirhyggja

Við vöndum allan undirbúning og áhættumetum hvern verkþátt í upphafi. Við vinnum eftir áætlunum, mælum árangur í vikulegu skorkorti og flöggum hindrunum strax, áður en til tafa eða kostnaðar kemur.

03

Áreiðanleiki

Við meinum það sem við segjum og segjum það sem við meinum. Áreiðanleiki er tryggður með samkvæmni, virku innra og ytra eftirliti og alþjóðlegri gæðavottun, ISO 9001:2015.

04

Ábyrgð

Við sýnum ábyrgð gagnvart fólki, framkvæmdum og umhverfinu. Við gefum engan afslátt af öryggismálum og vinnum markvisst að því að draga úr sóun og losun gróðurhúsalofttegunda.

ISO 9001 vottun (BSI)Jafnlaunavottun ÍST 85:2012 (BSI)
08 Vottanir & viðurkenningar

Alþjóðleg ISO 9001 gæðavottun í ellefu ár samfleytt og jafnlaunavottun samkvæmt ÍST 85:2012. Aðrar viðurkenningar: Jafnvægisvogin, Framúrskarandi fyrirtæki og ýmis hönnunarverðlaun.

09 Samband

Hefjum
samtalið.

Skrifstofa og höfuðstöðvar
Kópavogur
Turnahvarf 4
203 Kópavogur
Bein samskipti
ggverk@ggverk.is+354 517 1660
Opið alla virka daga
08:00 til 16:30
© 2006–2026 GG Verk ehf.Turnahvarf 4, 203 Kópavogur