GG Verk leitar að verkefnastjóra á sviði mannauðsmála í afleysingar
Mannauðurinn okkar mikilvægasta stoðin í rekstri og árangri GG Verk. Við auglýsum nú eftir verkefnastjóra á sviði mannauðsmála í afleysingar frá mars - nóvember, vegna fæðingarorlofs.
Um er að ræða leiðandi og ábyrgðarmikið hlutverk þar sem viðkomandi mun vinna náið með framkvæmdastjórn, verkefnastjórum og stoðsviðum fyrirtækisins. Starfið felur í sér bæði daglega umsýslu og áframhaldandi þróun mannauðsmála með áherslu á skipulag, fagmennsku og árangur.
Um starfið
Um er að ræða tímabundið fullt starf (í 8-9 mánuði) með mikilli ábyrgð, breidd og tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á skipulag, starfsumhverfi og árangur okkar. Viðkomandi mun starfa beint undir framkvæmdastjóra þjónustu og samskipta.
Starfið er fjölbreytt og krefst bæði yfirsýnar, framkvæmda- og samskiptahæfni. Verkefnastjóri á sviði mannauðsmála vinnur náið með framkvæmdastjórn, verkefnastjórum og stoðsviðum fyrirtækisins.
Helstu verkefni:
Dagleg umsýsla og þróun mannauðsmála
Ráðningarferli og móttaka nýrra starfsmanna
Skipulagning og samræming vaktaplans, orlofs og skipulag mannauðs
Umsýsla veikindaskráninga og tengdra ferla
Þátttaka í mælingum á frammistöðu og uppfærslu BI mælaborðs
Stuðningur við stjórnendur í mannauðsmálum
Umsýsla vinnufatnaðar og öryggisbúnaðar
Umsjón með leiguíbúðum fyrir erlent starfsfólk
Samstarf við fjármálasvið vegna launatengdra mála
Skipulagning viðburða og starfsmannatengdra verkefna
Þátttaka í þróun ferla og umbóta á sviði mannauðsmála
Önnur tilfallandi verkefni á sviði mannauðsmála
Starfið er bæði stefnumótandi og framkvæmdamiðað.
Við leitum að einstaklingi sem:
Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi
Hefur reynslu af mannauðsmálum, rekstri eða verkefnastjórnun
Er skipulagður, lausnamiðaður og sjálfstæður í starfi
Býr yfir sterkri samskiptahæfni , er áræðin/n og getur tekið ákvarðanir hratt
Hefur þekkingu á meðferð trúnaðarupplýsinga
Talar og ritar góða íslensku og ensku
Hefur framúrskarandi áhuga á fólki, vinnur vel í teymi og er lausnamiðaður
Þekkir og nýtir stafrænar lausnir og gervigreind í starfi
Hefur mjög góða færni í helstu tölvukerfum
Þrífst í hraðskreiðu og fjölbreyttu umhverfi
Reynsla af mannauðskerfum á borð við Kjarna og Tímon er kostur.
Um GG Verk
GG Verk er eitt stærsta byggingarfyrirtæki landsins og verður 20 ára á árinu. Fyrirtækið er ISO 9001 og jafnlaunavottað og leggur ríka áherslu á fagmennsku, skipulag og ábyrgð í öllum verkum.
Við vinnum í alþjóðlegu umhverfi þar sem fjölbreyttur bakgrunnur starfsfólks er styrkur. Við byggjum ekki aðeins vönduð mannvirki, heldur byggjum við saman sterkt starfs- og þekkingarumhverfi. Árlegar starfsánægjumælingar sýna að GG er eftirsóttur vinnustaður, þar sem fólk er sett í fyrsta sæti.
Umsókn
Áhugasamir eru hvattir til að senda ferilskrá og kynningarbréf í gegnum Alfred.is. Nánari upplýsingar veitir Brynhildur S. Björnsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu- og samskipta (brynhildur@ggverk.is),
Umsóknir verða yfirfarnar jafnóðum. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
👉 Nánari upplýsingar og umsókn má finna á Alfred.is.
Við hvetjum áhugasama til að kynna sér starfið og deila áfram.