Lennart van Veen
Gæða- og öryggisfulltrúi/QHSE coordinator
Innra- og ytra gæða- og öryggiseftirlit
Aðstoð við afhendingar og þjónusta við kaupendur
Áhættumöt og eftirfylgni
Skjölun og eftirfylgni
Öryggis- og gæðafræðsla
Lennart sér til þess að við séum alltaf að gera hlutina rétt – með góðum ferlum, skjölun og eftirfylgni sem skilar sér í færri göllum og auknum gæðum. Hann er kærkomin viðbót í gæða- og öryggisteymið okkar – til að styðja við bestun í innri gæðum og vönduðum afhendingum verkefna. Hann vinnur náið með gæða- og öryggisstjóra og byggingateymunum okkar í innra gæðaeftirliti, afhendingum og stuðningi við ISO innleiðingu.
Hann er iðnhönnunarverkfræðingur að mennt og kemur til okkar frá Noregi, þar sem hann hefur síðustu tíu árin starfað sem document controller og technical documentation engineer hjá Autronica Fire & Security – en þar sá hann m.a. um að þróa og viðhalda tæknilegri skjölun fyrir verkfræðileg verkefni, samræma gerð teikninga, gagnaeyðublaða, vottana og áætlana – og tryggja að öll skjöl væru í samræmi við kröfur, uppfærð og rekjanleg á hverjum tíma.
Heyrst hefur að Lennart sé mjög lunkinn á gítar – og við vonumst til að hann rífi upp stuðið í komandi starfsmannapartýum!