Kolfinna Baldursdóttir
Sérfræðingur í fjárstýringu og reikningsskilum
• Fjárstýring og uppgjör
• Áætlanagerð og eftirfylgni
• Greiningar og eftirfylgni
• Uppbygging mælikvarða og mælaborða
Kolfinna starfar sem sérfræðingur í fjárstýringu og reikningsskilum hjá GG Verk og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu gagnadrifinnar fjárhagsstýringar félagsins. Hún vinnur náið með framkvæmdastjóra fjármála og reksturs, auk verkefnastjóra og annarra stjórnenda, að því að tryggja skýra og áreiðanlega yfirsýn yfir stöðu verkefna og reksturs.
Áður en Kolfinna hóf störf hjá GG Verk starfaði hún á endurskoðunarsviði Deloitte, þar sem hún sinnti endurskoðun ársreikninga, uppgjörum og skattskilum fyrir fjölbreytt fyrirtæki. Í því starfi öðlaðist hún sterkan skilning á rekstri fyrirtækja, tengingu rekstrar við bókhald og mikilvægi vandaðrar upplýsingagjafar til stjórnenda.
Kolfinna er með MAcc í reikningshaldi og endurskoðun og BSc í hagfræði og fjármálum frá Háskólanum í Reykjavík en þar hefur hún einnig kennt stærðfræði. Hjá GG leggur Kolfinna áherslu á að efla áætlanagerð, bæta eftirfylgni með framlegð og kostnaði og styðja við ákvarðanatöku með skýrum og tímanlegum gögnum. Hún vinnur jafnframt að þróun mælikvarða og ferla sem styðja við aukna skilvirkni og betri yfirsýn yfir árangur verkefna.
Kolfinna er mikil fjölskyldumanneskja utan vinnutíma en engu að síður mikið félagsmálatröll. Enda sat hún t.a.m. í stjórn nemendafélags HR og sinnti starfi trúnaðarmanns í gæðaráði skólans.