GG Verk er framsækið fyrirtæki sem byggir á mikilli reynslu og sterkum grunni.

Verðmætasköpun okkar felst í byggingu vandaðra mannvirkja sem byggð eru innan tilskilins tímaramma - af framúrskarandi fagmennsku. Leiðarljós í okkar þjónustu eru: Góð samskipti, virk upplýsingagjöf, snyrtimennska, fagmennska og gæði.

GG Verk hlaut ISO 9001:2008 gæðavottun í nóvember 2015 og endurnýjaði svo vottunina og hlaut um leið uppfærslu í ISO 9001:2015 í október 2017. Hér má sjá skírteinið.

Við erum einnig stolt af því að hafa hlotið viðurkenningar og vottanir fyrir að vera Framúrskarandi fyrirtæki frá Credit Info og Fyrirmyndarfyrirtæki frá Viðskiptablaðinu. Við erum þó ekki síður stolt af því að hafa hlotið viðurkenninguna Jafnvægisvogina frá FKA á árinu 2020 enda trúum við því að jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja skili besta árangrinum.



Sundlaug_3.jpg