Alfa Lára Guðmundsdóttir

Mannauðs- og launasérfræðingur

  • Ráðning, móttaka og nýliðun

  • Þjálfun og fræðsla

  • Innri samskipti

  • Frammistaða og hæfni

  • Starfsánægja

alfa@ggverk.is

Alfa sér til þess að við séum örugglega alltaf að setja fólk í fyrsta sæti. Hún sér um daglega framkvæmd mannauðsmála hjá GG Verk og styður stjórnendur í öllum málum sem snúa að starfsfólki og mönnun verkefna. Hún kemur að ráðningum, nýliðun, starfsmannasamtölum og öðrum verkefnum sem tryggja að mannauður félagsins styðji vel við rekstur og þróun verkefna.

Alfa er með M.Sc. í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands og yfir áratuga reynslu af mannauðsmálum á stjórnendastigi. Hún hefur meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá A4 og DHL Express, þar sem hún sinnti ráðgjöf til stjórnenda, breytingaferlum, ráðningum og uppbyggingu ferla og mælikvarða í mannauðsmálum.

Við teljum okkur afar lánsöm að fá Ölfu til liðs við okkur á þessum tíma. Hún kemur með mikla reynslu, sterka yfirsýn og hands-on nálgun sem mun styðja vel við stjórnendur og starfsfólk GG Verk á næstu mánuðum.