Jöfursbás 3–7
Burðarvirki og fullnaðarfrágangur á 340 íbúðum í þremur kjörnum. Jöfursbás 5 og 7 afhentir; Jöfursbás 3 (190 íbúðir) lýkur 2027. Verkkaupi: Spilda ehf.
GG Verk er 20 ára byggingafyrirtæki sem setur fólk í fyrsta sæti. Fólk, fyrirhyggja, áreiðanleiki og ábyrgð.
GG Verk var stofnað árið 2006 af bræðrunum Gunnari og Helga Gunnarssyni, þriðju kynslóð í fjölskyldu smiða. Afi þeirra og faðir, báðir Gunnar Gunnarssyni, voru smiðir og lögðu grunninn að áratuga reynslu fjölskyldunnar í faginu.
Fyrirtækjamenningin ber þess enn merki að vera byggð á fjölskyldugrunni, þar sem samvinna, þátttaka og teymisvinna gegna veigamiklu hlutverki í öllu sem við gerum.
Við setjum fólk í fyrsta sæti, ekki síst starfsfólkið okkar. Starfsánægjumælingar sýna ár hvert að okkur líður vel saman í vinnunni. Hjá félaginu starfa um 100 manns.
Kynnstu fólkinu okkar
Burðarvirki og fullnaðarfrágangur á 340 íbúðum í þremur kjörnum. Jöfursbás 5 og 7 afhentir; Jöfursbás 3 (190 íbúðir) lýkur 2027. Verkkaupi: Spilda ehf.
Burðarvirki og fullnaðarfrágangur á 71 íbúð í 8 húsum á 3 hæðum auk bílakjallara. Eigið verkefni.
Burðarvirki og fullnaðarfrágangur á 56 íbúðum í 5 húsum á 3 hæðum auk bílakjallara, í þremur áföngum. Eigið verkefni.
Hjúkrunarheimili2026
Blönduð notkun2025
Íbúðir2025
Hótel2024
Íbúðir2024
Íbúðir2023
Atvinnuhúsnæði2022
Atvinnuhúsnæði2022
Íbúðir2021
Íbúðir2019
Atvinnuhúsnæði2007Nýjar, vandaðar íbúðir í verkefnum okkar sem nú eru til sölu. Smelltu til að skoða nánar.
TilkynningÚttektaraðilar BSI staðfestu að gæðakerfi GG Verk uppfyllir ISO 9001:2015 án nokkurra frávika, ellefta árið í röð.
VerkefniSólarhringshjúkrunarþjónustan í Urðarhvarfi 16 í Kópavogi var afhent þremur mánuðum á undan áætlun.
ViðtalViðtal við stjórnendur GG Verk um forystu, ábyrgð og þá sannfæringu að rekstur snúist fyrst og fremst um fólk.
Hlutverk GG Verk er að byggja vönduð mannvirki sem byggð eru innan tilskilins tímaramma, af framúrskarandi fagmennsku og umhyggju fyrir fólki og umhverfi. Til þess vinnum við markvisst eftir stjórnkerfi sem við köllum GG Módelið. Gildin fjögur eru hjartað í því hvernig við gerum hlutina.
Mannvirki eru fyrir fólk og byggð af fólki. Þess vegna setjum við fólk (viðskiptavini, starfsfólk og samstarfsaðila) alltaf í fyrsta sæti, og tryggjum ávallt öryggi þeirra.
Við vöndum allan undirbúning og áhættumetum hvern verkþátt í upphafi. Við vinnum eftir áætlunum, mælum árangur í vikulegu skorkorti og flöggum hindrunum strax, áður en til tafa eða kostnaðar kemur.
Við meinum það sem við segjum og segjum það sem við meinum. Áreiðanleiki er tryggður með samkvæmni, virku innra og ytra eftirliti og alþjóðlegri gæðavottun, ISO 9001:2015.
Við sýnum ábyrgð gagnvart fólki, framkvæmdum og umhverfinu. Við gefum engan afslátt af öryggismálum og vinnum markvisst að því að draga úr sóun og losun gróðurhúsalofttegunda.
Alþjóðleg ISO 9001 gæðavottun í ellefu ár samfleytt og jafnlaunavottun samkvæmt ÍST 85:2012. Aðrar viðurkenningar: Jafnvægisvogin, Framúrskarandi fyrirtæki og ýmis hönnunarverðlaun.